Valinn hefur verið landsliðhópur Íslands A kvenna sem mun leika tvo leiki í undankeppni EM í lok maí og byrjun júní. Fyrst í Laugardalshöll miðvikudaginn 30. maí gegn Tékklandi og svo mæta þær Dönum ytra laugardaginn 2. júní í Horsens.
Að þeim leikjum loknum mun liðið spila tvo æfingaleiki á móti Japan í Danmörku, mánudaginn 4. júní og þriðjudaginn 5. júní. Leikirnir fara fram í Svendborg, syðst á Fjóni.
Axel Stefánsson þjálfari A-landsliðs kvenna hefur valið 21 leikmann til að taka þátt í þessum leikjum. Hópurinn kemur saman til æfinga 24. maí og heldur svo til Danmerkur föstudaginn 1. júní.
Við FRAMarar erum stoltir af því að eiga fjóra fulltrúa í þessu landsliðshópi Íslands en þær sem voru valdar frá FRAM að þessu sinni eru;
Karen Knútsdóttir FRAM
Ragnheiður Júlíusdóttir FRAM
Steinunn Björnsdóttir FRAM
Þórey Rósa Stefánsdóttir FRAM
Gangi ykkur vel.
ÁFRAM FRAM