Nú ætlum við að halda áfram að hittast yfir súpudisk, veit ekki hvort þið trúið því en áttundi súpufundur vetrarins verður næsta föstudag 25. maí.
Það verður jafnframt síðasti súpufundur vetrarins og við tökum svo upp þráðinn í haust.
Það var góð mæting í síðasta súpuhádegi rétt rúmlega 70 manns mættu, almenn ánægja og heilmikið spjallað.
Boðið verður upp á súpu og brauð eins og venjulega.
Ekki er ætlunin að hafa þetta formlegt heldur kjörin vettvangur fyrir okkur Framara til að hittast yfir súpuskál og ræða saman.
Verðinu verður stillt í algjört hóf eða eingöngu á kostnaðarverði kr. 500.-
Áttundi fundurinn í súpuröðinni verður föstudaginn 25. maí kl. 12.00-13.30
í hátíðarsal FRAM Safamýri 26
Við hvetjum alla FRAMarar til að koma í súpu og endilega takið með ykkur félaga.
Kveðja Knattspyrnufélagið FRAM