Stefán Arnarson og Sigurgeir Jónsson, þjálfarar Íslands, U-19 ára landsliðs kvenna hafa valið 24 manna hóp til æfinga 28. – 30. september. Auk þess að æfa mun hópur mæta á fyrirlestra í Háskólanum í Reykjavík, fyrirlestrarnir kallast Afreksmaður framtíðarinnar og eru hluti af samstarfi HSÍ og HR.
Við FRAMarar erum sérlega stoltir af því að eiga fimm fulltrúa í þessum æfingahópi Íslands.Þær sem voru valdar frá FRAM að þessu sinni eru:
Erna Guðlaug Gunnarsdóttir FRAM
Harpa María Friðgeirsdóttir FRAM
Jónína Hlín Hansdóttir FRAM
Lena Margrét Valdimarsdóttir FRAM
Sara Sif Helgadóttir FRAM
Glæsilegur hópur, gangi ykkur vel.
ÁFRAM FRAMI