fbpx
Uppskeruhátíð-2019-7-1024x573 vefue

Uppskeruhátíð yngri flokka laugardaginn 14. september

Unglingaráð Knattspyrnudeildar Fram heldur hina árlegu uppskeruhátíð sína laugardaginn 14. september í veislusal Fram í Safamýri.

Í ár verður uppskeruhátíðin tvískipt:

  • kl. 12:00 uppskeruhátið 3. 4. og 5. flokks (2003-2008).
  • kl. 12:45 uppskeruhátíð 6. 7. og 8. flokks (2009 og yngri).

Nokkrir leikmenn 3. – 5. flokks verða heiðraðir fyrir góða frammistöðu og framfarir á tímabilinu sem var að ljúka.
Allir iðkendur í 6. 7. og 8. flokki fá viðurkenningu.
Eiríksbikarinn verður afhentur fyrir fyrirmyndar frammistöðu innan vallar sem utan og Framdómari ársins verðlaunaður

Að verðlaunaafhendingum loknum verður iðkendum, þjálfurum og foreldrum boðið upp á veitingar; grillaðar pylsur og drykk.

Allir knattspyrnumenn Fram eru boðnir velkomnir á hátíðina, sem og fjölskyldur þeirra.

Foreldrar eru sérstaklega hvattir til að koma með börnum sínum.

Strax að lokinni seinni uppskeruhátíðinni fjölmenna svo allir í stúkuna í Safamýrinni og hvetja meistaraflokk Fram til sigurs í síðasta heimaleik tímabilsins í Inkasso-deildinni.  Leikurinn hefst kl. 14:00 og mótherjarnir verða Þórsarar frá Akureyri.

Hlökkum til að sjá ykkur.

Barna- og unglingaráð knattspyrnudeildar Fram.

Share this post

Share on facebook
Share on twitter
Share on linkedin
Share on pinterest
Share on email
Karfa0
There are no products in the cart!
Halda áfram að versla
0