fbpx
Supuvefur

Súpufundur FRAM fimmtudaginn 28. nóv. kl. 12:00

Ágætu FRAMarar

Nú ætlum við að halda áfram að hittast yfir súpudisk, þriðji súpufundur vetrarins verður næsta  fimmtudag  28. nóvember.
Það var fín mæting í síðasta súpuhádegi en rúmlega 60 manns mættu og alltaf gaman að hittast en það vantaði samt marga. Heilmikið spjallað og létt yfir mannskapnum.

Boðið verður upp á súpu og brauð eins og venjulega.
Ekki er ætlunin að hafa þetta formlegt heldur kjörin vettvangur fyrir okkur Framara til að hittast yfir súpuskál og ræða saman.
Verðinu verður stillt í algjört hóf eða eingöngu á kostnaðarverði kr. 500.-

Þriðji  fundurinn í  súpuröðinni verður fimmtudaginn 28.  nóv.  kl. 12.00-13.30 í hátíðarsal FRAM Safamýri 26.

Athugið að núna er súpan á fimmtudögum í vetur.
Þetta verður síðasti súpufundur ársins en við tökum upp þráðinn aftur í janúar.

Við hvetjum alla FRAMarar til að koma í súpu  og endilega takið með ykkur félaga.

Kveðja Knattspyrnufélagið FRAM

Share this post

Share on facebook
Share on twitter
Share on linkedin
Share on pinterest
Share on email
Karfa0
There are no products in the cart!
Halda áfram að versla
0