Tumi Guðjónsson hefur gengið til liðs við Fram. Tumi, sem er fæddur 1999, kemur til Fram frá Vængjum Júpiters þar sem hann hefur spilað undanfarin 3 ár en hann er uppalinn hjá Fjölni.
Tumi er varnarmaður, spilar sem hægri bakvörður eða hafsent. Það er mikið ánægjuefni að fá unga og efnilega leikmenn til liðs við félagið og gaman verður að sjá Tuma vaxa og dafna sem knattspyrnumaður í röðum félagsins.
ÁFRAM FRAM