fbpx
FRAM og Errea vefur 2020

Fram framlengir samning sinn við Errea til 2024

Knattspyrnufélagið Fram og Errea á Íslandi skrifuðu í dag  undir áframhaldandi samstarfssamning til næstu fjögurra ára, en Fram hefur leikið í búningum frá Errea frá árinu 2002 eða í átján ár.

Þessi samningur er líkt og sá fyrri við félagið í heild sinni og munu allir flokkar félagsins leika í búningum frá Errea.

Knattspyrnufélagið Fram fagnar þessum nýja samningi við Errea og munum við í samtarfi við Errea reyna að kappkosta að bjóða uppá gott úrval af vörum frá Errea til okkar iðkenda.
Sú breyting verður í þessum nýja samningi að öll sala á Fram fatnaði fer núna fram í Sportbúð Errea Bæjarlind 14-16, Kópavogi. Þannig tryggjum við betra úrval og betri þjónustu við okkar iðkendur og félagsmenn.

Samningurinn var undirritaður í Íþróttahúsi FRAM og hann undirrituðu Þorvaldur Ólafsson framkvæmdarstjóri Errea á Íslandi  og Þór Björnsson íþróttastjóri Fram.

Knattspyrnufélagið FRAM

Share this post

Shopping cart0
There are no products in the cart!
Continue shopping
0

Skráðu þig á póstlistann!

Fáðu allar fréttir, tilboð og aðrar upplýsingar beint í æð!