Í gær var gengið fá samningi til tveggja ára við þrjá efnilega uppalda leikmenn. Þetta eru þeir Birgir Bent Þorvaldsson, Halldór Bjarki Brynjarsson og Róbert Daði Sigurþórsson, allir fæddir 2001.
Strákarnir komu allir upp úr 2. flokk í haust og taka nú næsta skref innan félagsins og á sínum ferli. Á sama tíma var gengið frá láni þeirra allra til Úlfanna, venslafélags Fram, þar sem þeir munu spila á láni í sumar.
Til hamingju með áfangann strákar, við hlökkum til að sjá ykkur takast á við verkefnin framundan.
Share this post
Share on facebook
Share on twitter
Share on linkedin
Share on pinterest
Share on email