fbpx
Supuvefur

Súpa, Súpa Súpa, síðasti súpufundurinn í Safamýri, fimmtudaginn 2. júní

Ágætu FRAMarar

Nú ætlum við að halda áfram að hittast yfir súpudisk, fimmti  súpufundur vetrarins verður á fimmtudaginn 2. Júní.

Það var mjög góð mæting í síðasta súpuhádegi en rúmlega 40 manns mættu hressir og kátir í súpuna.
Heilmikið spjallað og létt yfir mannskapnum.

Boðið verður upp á súpu og brauð eins og venjulega.

Ekki er ætlunin að hafa þetta formlegt heldur kjörin vettvangur fyrir okkur Framara til að hittast yfir súpuskál og ræða saman.

Verðinu verður stillt í algjört hóf eða eingöngu á kostnaðarverði kr. 1000.-

Fimmti  fundurinn í  súpuröðinni verður fimmtudaginn 2. Júní  kl. 12.00-13.30 í hátíðarsal okkar í Safamýri.

Athugið að þetta verður síðasti súpufundurinn í vetur og jafnframt síðasti súpufundurinn í Safamýrinni.  Við tökum svo upp þráðinn í Úlfarsárdal í haust.

Við hvetjum alla FRAMarar til að koma í súpu  og endilega takið með ykkur félaga.

Kveðja Knattspyrnufélagið FRAM

Share this post

Shopping cart0
There are no products in the cart!
Continue shopping
0

Skráðu þig á póstlistann!

Fáðu allar fréttir, tilboð og aðrar upplýsingar beint í æð!