Kæru Framarar
Íþróttamaður Fram 2022 verður útnefndur föstudaginn 30. desember.
Á 100 ára afmæli FRAM 2008 var ákveðið að taka upp þann sið að kjósa „Íþróttamann/konu ársins“ – aðila sem félagið telur að hafi náð afburða árangri í íþrótt sinni ásamt því að vera fyrirmynd FRAM innan vallar sem utan.
Tilkynnt verður um valið á “Íþróttamanni FRAM 2022″ í hófi sem verður haldið í nýjum veislusal FRAM, föstudaginn 30. des. kl. 17:00. að Úlfarsbraut 126, Íþróttamiðstöð Fram.
Allir velkomnir meðan húsrúm leyfir og hvetjum við Framara til að mæta í nýjar höfuðstöðvar Fram og þiggja léttar veitingar.
Þeir FRAMarar sem tilnefndir eru fyrir árið 2022 eru:
Bjarki Kjartansson Taekwondodeild Fram
Erika Rún Heiðarsdóttir Knattspyrnudeild Fram
Guðmundur Magnússon Knattspyrnudeild Fram
Jenný María Jóhannsdóttir Taekwondodeild Fram
Karen Knútsdóttir Handknattleiksdeild Fram
Páll Þórir Daníelsson Blakdeild Fram
Steinunn Björnsdóttir Handknattleiksdeild Fram
Steinunn Inga Björnsdóttir Blakdeild Fram
Þorsteinn Gauti Hjálmarsson Handknattleiksdeild Fram
Minnum svo á Flugeldasölu FRAM í Úlfarsárdal.
Knattspyrnufélagið FRAM