Dagana 8. – 18. ágúst mun knattspyrnudeild Fram bjóða upp á Copa America knattspyrnuskóla fyrir krakka á aldrinum 5 til 12 ára. Knattspyrnuskólinn verður kl. 13:00-16:00.
Þjálfarar námskeiðsins verða leikmenn meistaraflokka Fram, karla og kvenna, ásamt yngri flokka þjálfurum.
Hópnum verður skipt upp eftir aldri, reynslu og getu þannig að allir fái verkefni við hæfi.
Verð fyrir viku 1 (8.-11. ágúst) er kr. 10.000-.
Verð fyrir viku 2 (14.-18. ágúst) er kr. 12.000-.
Verð fyrir tvær vikur (8.-18. ágúst) er kr. 20.000-.
Skráning á Sportabler.