Ágætu Framarar
Nú ætlum við að halda áfram að hittast yfir súpudiski, þetta verður tíundi veturinn sem við höldum þessum sið, færðum okkur í Úlfarsárdalinn í fyrra og höldum því áfram.
Fyrsti súpufundur vetrarins verður á fimmtudaginn 30. nóv. Það hefur verið almenn ánægja með súpufundina og yfirleitt vel mætt. Heilmikið spjallað og létt yfir mannskapnum.
Boðið verður upp á súpu, brauð og kaffi eins og venjulega.
Ekki er ætlunin að hafa þetta formlegt heldur kjörin vettvangur fyrir okkur Framara til að hittast yfir súpuskál og ræða saman.
Verðið verður núna kr. 1000.-
Fyrsti fundurinn í súpuröðinni verður fimmtudaginn 30. nóv. kl. 12.00-13.30 í hátíðarsal okkar í Úlfarsárdal.
Frumkvöðull að súpuhádeginu Hörður „ Castro“ Einarsson verður ekki með okkur í veturinn frekar en undanfarin ár en ég er sannfærður um að hann verður áfram með okkur í anda enda var þetta honum mikið hjartans mál að finna vettvang fyrir alla FRAMara til að koma saman og eiga góða stund.
Við hvetjum alla FRAMarar til að koma í súpu og endilega takið með ykkur félaga.
Allir velkomnir.
Kveðja
Knattspyrnufélagið FRAM