Knattspyrnudeild Fram kynnir með miklu stolti og gleði að Þorri Stefán er mættur aftur í blátt.
Ekki er blái liturinn honum ókunnugur þar sem hann er uppalinn Framari og fáum við hann lánaðan út tímabilið frá danska úrvalsdeildarliðinu Lyngby.
Þorri er af þeim öfluga 2006 árgangi okkar Framara, hann er örvfættur stór og stæðilegur varnarmaður sem á að baki 9 leiki fyrir U-17 lið Íslands og 3 fyrir U-19 lið Íslands.
Við hlökkum öll til að fylgjast með Þorra í sumar og leggjumst nú saman á eitt og styðjum þétt við bakið á okkar ungu og efnilegu heimamönnum.
Velkominn heim Þorri!