Ágætu FRAMarar
Nú ætlum við að halda áfram að hittast yfir súpudisk, þriðji súpufundur vetrarins verður á fimmtudag 21. mars. Það var fín mæting í síðasta súpuhádegi en við viljum sjá fleiri á fimmtudag.
Heilmikið spjallað og létt yfir mannskapnum.
Boðið verður upp á súpu og brauð eins og venjulega.
Ekki er ætlunin að hafa þetta formlegt heldur kjörin vettvangur fyrir okkur Framara til að hittast yfir súpuskál og ræða saman.
Verðinu verður stillt í algjört hóf eða eingöngu á kostnaðarverði kr. 1000.-
Þriðji fundurinn í súpuröðinni verður fimmtudaginn 21. mars kl. 12.00-13.30 í hátíðarsal okkar í Safamýri.
Við hvetjum alla FRAMarar til að koma í súpu og endilega takið með ykkur félaga.
Kveðja Knattspyrnufélagið FRAM