Þóra Rún Óladóttir hefur framlengt samning sinn við Fram til tveggja ára, eða út keppnistímabilið 2026.
Þóra er virkilega öflugur markmaður og hefur bætt sig gríðarlega undanfarin ár. Hún spilaði lykilhlutverk í velgengni kvennaliðsins í sumar, bæði með því að halda hreinu í 2 af 3 leikjum sem hún spilaði og líka með því að vera stöðugt hvetjandi og jákvæð gagnvart liðsfélögum, ekki síst keppinautum sínum um markvarðastöðuna.
Það er mikið fagnaðarefni fyrir okkur að halda Þóru áfram innan herbúða félagsins. Hún er frábær leikmaður og karakter og við hlökkum til að sjá hana halda áfram að vaxa og bæta sig.