Fram varð í gær Símabikarmeistarar 3.flokks kvenna þegar þeir báru sigurorð af Selfoss 24-21.
Leikurinn var jafn og spennandi en okkar stúlkur höfðu frumkvæðið í leiknum og yfir nánast allan leikinn.
Staðan í hálfleik var 11- 9 fyrir FRAM. Stelpurnar okkar héldu frumkvæðinu í seinni hálfleik og bættu sátt og smátt í og unnu að lokum 3 marka sigur eins og áður sagði. Hrikalegar flottar stelpur sem við eigum í 3. fl.kv.
Til hamingju stelpur.