FRAM og ÍR skildu jöfn í Lengjubikarkeppni kvenna í knattspyrnu á Hertzvellinum í Breiðholti í kvöld, 1-1. Liðin sitja sem fyrr í öðru og þriðja sæti 1.riðils C-deildar Lengjubikarsins, nú með fjögur stig.
FRAMstúlkur hófu leikinn á Hertzvellinum af miklum krafti og Fjóla Sigurðardóttir kom þeim yfir strax á fjórðu mínútu. Anna Margrét Konráðsdóttir jafnaði metin fyrir ÍR á 38.mínútu og þar við sat.
Staðan í 1.riðli C-deildar Lengjubikarkeppni kvenna er nú þessi:
FÉLAG | L | U | J | T | MÖRK | NET | STIG | |
---|---|---|---|---|---|---|---|---|
1 | ÍA | 2 | 2 | 0 | 0 | 15 – 1 | 14 | 6 |
2 | ÍR | 2 | 1 | 1 | 0 | 3 – 1 | 2 | 4 |
3 | Fram | 3 | 1 | 1 | 1 | 10 – 10 | 0 | 4 |
4 | Keflavík | 1 | 0 | 0 | 1 | 0 – 6 | -6 | 0 |
5 | Víkingur Ó. | 2 | 0 | 0 | 2 | 0 – 10 | -10 | 0 |
FRAM tekur á móti Keflavík á FRAMvellinum í Úlfarsárdal í lokaleik sínum í riðlakeppni Lengjubikarsins á laugardaginn eftir viku, 27.apríl, og hefst leikur liðanna klukkan 14.