FRAM tekur á móti FH í fjórða leik undanúrslitarimmu N1-deildar karla í handknattleik klukkan 15 á sunnudag. FRAM hefur forystu í einvíginu 2-1 og með sigri á sunnudag tryggir liðið sér sæti í sjálfum úrslitunum um Íslandsmeistaratitilinn.
FRAMARAR! Nú sýnum við úr hverju við erum gerðir – mætum í FRAMhúsið á sunnudag og hvetjum drengina okkar til dáða! Háreysti, hvatning, kurteisi og virðing vel þegin.
Hvað er betra á sunnudegi en að skella sér í grill í Safamýrinni og horfa á hágæða handbolta? Nei, einmitt. Ekkert.
MÆTUM OG LÁTUM TIL OKKAR TAKA – SÝNUM HVERJIR ERU BESTIR!