FRAM bar sigurorð af ÍBV, 21-17, í fjórða leik undanúrslita N1-deildar kvenna í handknattleik í Vestmannaeyjum í dag og tryggði sér þar með sæti í úrslistarimmunni um Íslandsmeistaratitilinn. FRAM vann einvígið við ÍBV 3-1 og bíður nú sigurvegarans úr rimmu Vals og Stjörnunnar. Valur vann Stjörnuna í dag 26-22, jafnaði metin í einvíginu 2-2 og liðin mætast í oddaleik að Hlíðarenda á mánudagskvöldið kemur.
FRAM náði undirtökunum í leiknum í Eyjum í dag í fyrri hálfleik og hafði þriggja marka forystu í leikhléi, 10-7. Varnarleikur liðsins var enn með ágætum, Eyjastúlkur skoruðu í þremur síðustu leikjunum gegn FRAM 18 mörk, 19 mörk í framlengdum leik og 17 mörk í dag. Fjögurra marka sigur er staðreynd og þar með er þessari undanúrslitarimmu lokið með sigri FRAM,3-1.