7.flokkur FRAM tók þátt í Norðurálsmótinu á Akranesi um síðustu helgi. FRAMarar voru fjölmennir að þessu sinni. 72 strákar í átta liðum voru fulltrúar FRAM á mótinu og að sjálfsögðu fylgdu fjölskyldur þeirra þeim eftir og studdu við bakið á sínum mönnum.
Árangur FRAM-strákanna var sannarlega glæsilegur. Öll liðin stóðu sig með stakri prýði og þess má geta að A-liðið varð sigurvegari í íslensku deildinni og E-liðið hlutskarpast í þýsku deildinni. FRAMtíðin er svo sannarlega björt.
Hér er skemmtilegt myndband sem sýnir leið FRAMara að gullinu í íslensku deildinni.