Stelpurnar okkar biðu lægri hlut gegn Val í Olísdeild kvenna. Leikurinn byrjaði ekki vel f. okkar konur og komust Valskonur í 3-9 í fyrri hálfleik en þegar leið á hálfleikinn náðum við meiri tökum á leiknum og staðan í hálfleilk var 11-12. Valskonur gerðu svo út um leikinn í byrjun seinni þegar Valkonur náðu 4 marka forrustu sem þær létu aldrei af hendi. Stelpurnar okkar börðust vel í leiknum og spiluð á köflum góðan varnarleik en það vantaði að fleiri tækju afskarið í sókninni. Samt ágætur leikur hjá okkar unga liði og bjart framundan. Lokatölur 19-24.