Herrakvöld FRAM verður haldið föstudaginn 8. nóvember í veislusal okkar Framara
Frábær skemmtun þar sem ræðumaður er engin annar en Þorsteinn Guðmundsson leikari,
Sólmundur Hólm fer með gamanmál eins og honum einum er lagið.
Veislustjórn verður svo í höndum Sigurðar Inga Tómassonar
Húsið opnar kl. 19:00 og borðhald hefst kl. 20:00
Happdrættið og málverkauppboðið verður á sínum stað undir styrkri stjórn Sigurðar Inga Tómassonar.
Þóra okkar sér um að allir væti kverkarnar reglulega þannig að nú er bara að mæta. Takið kvöldið frá !
Boðið verður upp á frábært hlaðborð frá Laugaási
Allir karlar, Framarar, ungir, gamlir, það verður gríðarleg stemming eins og alltaf.
Miðasala í Íþróttahúsi Fram – pantið í síma 533 5600, miðaverð kr. 7500.- sjáumst hressir
Kvennakvöld Fram verður haldið laugardaginn 9. nóvember í veislusal okkar Framara.
Miðasala er hafin á Kvennakvöld Fram og kostar miðinn 5.500 kr.
Dagskrá:
– Fordrykkur
– Matur frá Ragnari í Laugaás
– Jón Jónsson mætir á svæðið og skemmtir
– Glæsilegt happdrætti meistaraflokks.
Húsið opnar kl. 19:30 og borðhald hefst kl. 20:00. Hægt er að kaupa miða í Framheimilinu og á netinu.
Nánari upplýsingar er hægt að fá hjá
Sigrún: sibragadottir@actavis.com gsm: 892-7385
Gyða: gydamaria@internet.is gsm: 896-1085
Sigga: Sigridur.B.Bjornsdottir@landsbankinn.is gsm. 863-0156
Fjölmennum á þetta frábæra kvennakvöld og styðjum stelpurnar í meistaraflokki FRAM.
Aðalstjórn FRAM