fbpx
image

Leikmenn meistaraflokks heimsóttu yngri flokkana

Í vikunni heimsóttu leikmenn meistaraflokks FRAM í fótboltanum yngri flokka félagsins. Strákarnir kíktu á æfingar hjá krökkunum bæði í Safamýrinni og Úlfarsárdalnum og afhentu öllum boðsmiða á leikinn mikilvæga gegn Fjölni á mánudagskvöldið.  Sá leikur getur ráðið miklu um það hvort við höldum sæti okkar í Pepsi deildinni.  Stuðningur áhorfenda getur skipt sköpum og hinir ungu iðkendur í FRAM ætla svo sannarlega ekki að láta sitt eftir liggja heldur fjölmenna á völlinn og taka mömmu og pabba og systkini sín með og styðja sitt lið.

imageimage

 

Fjölmennum öll í Laugardalinn á mánudag kl 19:15 og styðjum okkar menn til sigurs.

Áfram FRAM!

Share this post

Shopping cart0
There are no products in the cart!
Continue shopping
0

Skráðu þig á póstlistann!

Fáðu allar fréttir, tilboð og aðrar upplýsingar beint í æð!