Í gær tryggði 2. fl kk. sér sæti í A deild, deild hinna bestu fyrir árið 2015. Með þvi að sigra lið Keflavíkur með tveimur mörkum gegn engu í Keflavík. Liðin enduðu þar með með sama stigafjölda 37 stig en Keflavik með 2 mörk í plús á Fram þannig að Fram fékk silfur pening en voru grátlega nálægt þvi að hampa bikarnum. Frábær frammistaða drengjanna í gær kórónaði frábært sumar en flokkurinn varð einnig Reykavikurmeistari i byrjum sumars.
Flokkurinn lék samtals : 29 mótaleiki vann 17, gerði 7 jafntefli og tapaði 5 leikjum. Að auki voru drengirnir mjög duglegir að dæma hjá yngri flokkum félagsins sem og að sinna gæslu á heimaleikjum MFL KK. Í Þessum flokki eru fyrsti árgangurinn sem hóf að æfa fótbolta undir merkjum FRAM í Grafarholti og hefur farið í gegnum barna og unglingastarf félagsins , og þeir eru bara þeir fyrstu af mörgum.
Þjálfarar flokksins eri þeir Haukur Hilmarsson og Aðalsteinn Aðalsteinsson.