fbpx
Dómarar II vefur

B og C-stigs dómaranámskeið framundan hjá HSÍ.

DómararC-stigs dómararnámskeið.
Helgina 10.-12. október verður haldið C-stigs dómaranámskeið ef næg þátttaka fæst (lágmark 10).
C-stig er efsta stig dómararéttinda og veitir rétt til að dæma alla leiki.

Skráning fer fram á robert@hsi.is og lýkur föstudaginn 3. október nk. Þátttakendur skulu taka fram við skráningu nafn, kennitölu, félag, tölvupóstfang og síma

B-stigs dómararnámskeið.
Námskeiðið verður haldið helgina 24.-25. október nk. ef næg þátttaka fæst (lágmark 20).
B-stig er miðstig dómararéttinda og gefur rétt til að dæma alla leiki nema leiki í meistaraflokki og
2. flokki karla, úrslitaleiki yngri flokka og bikarkeppni yngri flokka.

Skráning fer fram á robert@hsi.is og lýkur þriðjudaginn 21.október. Þátttakendur skulu taka fram við skráningu nafn, kennitölu, félag, e-mail og síma.

Við hvetjum alla FRAMara sem hafa áhuga á því að dæma fyrir okkur og ná sér í aukna þekkingu á dómgæslu,  málefnum tengdum dæmgæslu og handbolta almennt að skoða þetta vel.

ÁFRAM FRAM

Share this post

Shopping cart0
There are no products in the cart!
Continue shopping
0

Skráðu þig á póstlistann!

Fáðu allar fréttir, tilboð og aðrar upplýsingar beint í æð!