Stórskyttan öfluga, Ragnheiður Júlíusdóttir, hefur skrifað undir nýjan samning við uppeldisfélag sitt FRAM. Þar með er tryggt að Ragnheiður muni leika með félaginu alla vega til vorsins 2017. Ragheiður hefur leikið með FRAM frá unga aldri og var í vor valinn efnilegasti leikmaður meistaraflokks kvenna. Ragnheiður hefur leikið með öllum yngri landsliðum Íslands og var í haust valinn í A landslið Íslands. Þrátt fyrir ungan aldur hefur Ragnheiður leikið um 40 leiki með meistaraflokki FRAM og skorað í þeim 179 mörk. Ragnheiður, er nú á batavegi eftir veikindi sem hafa hrjáð hana, en hún er klárlega ein af lykil leikmönnum FRAM á næstu árum. Þessi samningur er mikið fagnaðarefni fyrir FRAM.
Handknattleiksdeild FRAM