Við FRAMarar héldum í dag fyrsta súpufund vetrarins og erum bara sælir með mætinguna. Okkur telst til að við höfum verið rétt tæplega 60 sem gæddum okkur á þessari líka fínu súpu. Það var sérlega gaman að sjá alla þessa FRAMarar á öllum aldri mæta.
Það er von okkar að við sjáum alla þá sem komu í dag og enn fleiri þegar við höldum næsta fund sem verður föstudaginn 30. okt.
Hvetjum alla FRAMara til að mæta og hjálpa okkur að láta fleiri vita af þessari velheppnuðu uppákomu.
Takk fyirr komuna og sjáumst í október.
ÁFRAM FRAM