fbpx
Supuvefur

Súpuhádegi FRAMara á föstudag 30. okt. kl. 12:00

IMG_3322Nú höldum við okkar annan súpufund þennan veturinn, það var góð mæting í síðasta súpuhádegi en um 60-70 manns mættu og almenn ánægja með hvernig til tókst. Heilmikið spjallað og létt yfir mannskapnum.
Boðið verður upp á súpu og brauð.
Ekki er ætlunin að hafa þetta formlegt heldur kjörin vettvangur fyrir okkur Framara til að hittast yfir súpuskál og ræða saman.
Verðinu verður stillt í algjört hóf eða eingöngu á kostnaðarverði kr. 500.-
Annar fundurinn í  súpuröðinni verður föstudaginn
30. okt.  kl. 12:00-13:30 í hátíðarsal okkar í Safamýri.

Heiðursgestur og frumstofnandi að súpuhádeginu er og verður Hörður „ Castró“ Einarsson.

Við hvetjum alla FRAMarar til að koma í súpu í hádeginu á föstudag og endilega takið með ykkur félaga.

Kveðja Knattspyrnufélagið FRAM

Share this post

Shopping cart0
There are no products in the cart!
Continue shopping
0

Skráðu þig á póstlistann!

Fáðu allar fréttir, tilboð og aðrar upplýsingar beint í æð!