Einar Jónsson landsliðsþjálfari Íslands U20 í handbolta hefur valið 21 leikmann til æfinga milli jóla og nýárs. Hópurinn mun hefja æfingar 26. des. og munu stelpurnar æfa þétt fram að áramótum. Við FRAMarar erum stoltir af því að eiga tvo fulltrúa í þessum flotta hópi en þær sem voru valdar frá FRAM að þessu sinni eru:
Hulda Dagsdóttir FRAM
Ragnheiður Júlíusdóttir FRAM
Gangi ykkur vel.
ÁFRAM FRAM