fbpx
Auglýsing jan 2016

Knattspyrnuakademía Fram – kynningarfundur á sunnudag kl. 17:00

Nýtt námskeið hjá Knattspyrnuakademíu Fram fyrir iðkendur fædda 1997-2003 hefst í næstu viku. Námskeiðið stendur í fjórtán vikur, 27. janúar – 27. apríl. Skráning er hafin á https://fram.felog.is/ og takmarkast fjöldi þátttakanda við fjörtíu.

Kynningarfundur verður haldinn í íþróttahúsi Fram í Safamýri sunnudaginn 24. Janúar kl. 17:00 og eru iðkendur í 2.-4. flokki karla og kvenna og foreldrar þeirra hvattir til að mæta og kynna sér þetta spennandi verkefni.

Auglýsing jan 2016

Knattspyrnuakademían er nýtt og metnaðarfullt verkefni á vegum barna- og unglingaráðs knattspyrnudeildar Fram. Markmið akademíunnar er að gera iðkendum grein fyrir hvað þarf til að ná árangri í afreksknattspyrnu, bæta færni þeirra og auka skilning þeirra á mikilvægi þátta sem styðja við knattspyrnuþjálfunina; svo sem næringarfræði og sálfræði.

Knattspyrnuæfingarnar verða tvo morgna í viku og fara þær fram við bestu aðstæður í Egilshöll og Safamýri undir stjórn Zeljko Óskars Sankovic og þjálfara frá knattspyrnudeild Fram.
Zeljko er margreyndur afreksþjálfari og starfar sem aðstoðarþjálfari meistaraflokks karla hjá Fram. Aðrir knattspyrnuþjálfarar verða Halldór Þ. Haldórsson yfirþjálfari yngri flokka Fram, Haukur Hilmarsson, Vigfús Geir Júlíusson og Agnar Þór Hilmarsson sem allir hafa áralanga reynslu af þjálfun yngri flokka. Markmannsþjálfun verður í höndum Atla Gunnars Guðmundssonar markmannsþjálfara yngri flokka Fram.

Styrktaræfingar fara fram samhliða knattspyrnuæfingunum undir stjórn Ara Elbergs Guðlaugssonar styrktarþjálfara Fram. Iðkendur fá kennslu í grunnþáttum styrktarþjálfunar. Gerð verða liðleikapróf, líkamsstöðugreiningar, mælingar á jafnvægi og farið yfir meiðslafyrirbyggjandi æfingar og mikilvægi þeirra.

Silja Úlfarsdóttir ÍAK einkaþjálfari og margreyndur þjálfari og afrekskona í frjálsum íþróttum sér um hlaupaþjálfun á námskeiðinu. Silja mun m.a. kenna iðkendum rétta hlaupatækni og setja upp æfingaprógram sem nýtist knattspyrnuiðkendum til að bæta sinn leik.

Agnes Þóra Árnadóttir M.sc. í íþróttanæringarfræði sér um næringarfræðiráðgjöfina. Markmiðið með henni er að iðkendur öðlist betri matarvitund og aukinn áhugi á að nota næringu til að bæta sig í íþróttum. Agnes kemur til með að halda tvo fyrirlestra fyrir iðkendur auk þess sem þeir skila til hennar matardagbók og stendur til boða viðtalstími.

Anna Sigurðardóttir sálfræðingur Cand. Psych. sér um sálfræðilhuta námskeiðsins. Anna hefur starfað víða um Evrópu við almenna heilsueflingu og ráðgjöf síðastliðin tuttugu ár sem einkaþjálfari, hóptímakennari og fyrirlesari. Hún hefur einnig mikla reynslu af því að vinna með sjálfstyrkingu, sjálfsöryggi, markmiðasetningu og frammistöðu einstaklinga í keppnisíþróttum.
Fræðslan verður í formi fyrirlestra og hópráðgjafar auk þess sem iðkendur fá í hendur lesefni og skila heimaverkefni um markmiðasetningu. Markmið fræðslunnar er að iðkendur læri að setja sér raunhæf og mælanleg markmið. Skýr og raunhæf markmiðasetning bætir frammistöðu og eykur áhugahvöt. Einnig verður fræðsla um hvernig hægt sé að tileinka sér jákvætt hugarfar til að takast á við krefjandi verkefni og öðlast meira sjálfstraust og öryggi. Fræðslan og heimaverkefnin gagnast nemendum vel hvort sem þau vilja ná betri árangri í fótbolta, námi eða almennt í lífinu.

Sérfræðingar

Námskeiðsgjald er kr. 38.000- og skráning er hafin á https://fram.felog.is/.

Nánari upplýsingar veitir Daði í síma 587-8800 eða dadi@fram.is.

Vonumst til að sjá sem flesta á kynningarfundinum á sunnudag kl. 17:00 í Safamýrinni.

Share this post

Share on facebook
Share on twitter
Share on linkedin
Share on pinterest
Share on email
Shopping cart0
There are no products in the cart!
Continue shopping
0

Skráðu þig á póstlistann!

Fáðu allar fréttir, tilboð og aðrar upplýsingar beint í æð!