Það verður sannkölluð bikarhátið hjá okkur í FRAM á sunnudag, því þá leika yngriflokkar okkar í handbolta hvorki meira né minna en fjóra úrslitaleiki í bikarkeppni HSÍ, Coka Cola bikarnum. Við eigum sem sé lið í úrsltum í fjórum af sjö úrslitaleikjum sem leiknir verða í Höllinni þennan dag. Glæsilegt hjá okkar yngri flokkum.
Leikirnir fara fram í Laugardalshöll en þar verður umgjörðin glæsileg og engu til sparað.
Það er alltaf draumur hvers leikmanns að komast í höllina og leika bikarúrslitaleik og þessir leikir eru þeir leikir sem allir yngri leikmenn vilja prufa að leika áður en þeir fara á stórasviðið með meistaraflokkunum.
Við FRAMarar eigum eins og áður sagði 4 leiki í Höllinni sunnudaginn 28. febrúar.
Leikið verður sem hér segir:
Kl. 09:30 4. fl. kv. Yngri FRAM – Víkingur
Kl. 14:45 4. fl. kv. Eldri FRAM – HK
Kl. 18:30 3. fl. kv. FRAM – Selfoss
Kl. 20:30 2. fl. ka. FRAM – Valur
Hvetjum alla FRAMarar til að mæta í Höllina á sunnudag og hvetja krakkana okkar og styðja við bakið þessum glæsilegu fulltrúum sem við eigum í úrslitaleikjum Coka Cola bikarsins.
Allir leikirnir verða sýndir beint á www.sporttv.is
ÁFRAM FRAM