Handknattleiksdeild FRAM hefur samið við Svan Pál Vilhjálmsson tvítugan Eyjamann.
Svanur Páll kemur eins og áður sagði frá ÍBV þar sem hann er uppalinn. Svanur er örvhentur hornamaður hefur leikið fyrir ÍBV síðastliðin ár, varð meðal annars bikarmeistari með ÍBV 2015 og lék 21 leik með ÍBV á síðasta tímabili. Samningur Svans við FRAM er til tveggja ára og væntum við FRAMarar mikils af drengnum á næstu árum.
Velkominn Svanur
Handknattleiksdeild FRAM