Hæfileikamót KSÍ og N1 drengja fer fram í Kórnum í Kópavogi dagana 23. – 25. september. Mótið fer fram undir stjórn Halldórs Björnssonar.
Undanfarið hefur Halldór Björnsson ferðast um landið með Hæfileikamótun KSÍ og N1 og er þetta mót framhald af þeirri vinnu. Um er að ræða leikmenn sem eru í 4. flokki, 13 til 14 ára, og hafa þeir mætt á æfingar og fengið annan fróðleik í gegnum Hæfileikamótun KSÍ og N1.
Hópnum er skipt niður í sex lið sem leika í tveimur riðlum. Dagskráin hefst á föstudeginum í KSÍ Laugardal, mótið hefst svo kl. 16:00 laugardeginum í Kórnum í Kópavogi og leikið er svo frá kl. 13:30 á sunnudeginum.
Aðstandendur leikmanna, þjálfarar og aðrir eru velkomnir að koma og fylgjast með leikjunum úr stúkunni í Kórnum.
Við FRAMarar erum stoltir af því að eiga þrjá fulltrúa á þessu hæfileikamóti KSÍ, en þeir sem voru valdir frá FRAM að þessu sinni eru:
Mikael Egill Ellertsson Fram
Börkur Þorri Þorleifsson Fram
Steinar Bjarnason Fram
Gangi ykkur vel drengir.
ÁFRAM FRAM