Við FRAMarar héldum í dag súpufund númer fjögur og jafnframt þann fyrsta á nýju ári. Við erum alsælir með mætinguna, enda fjölgaði heldur betur í hópnum og þó nokkur ný andlit sem létu sjá sig. Okkur telst til að við höfum verið rétt tæplega 90 sem gæddum okkur á þessari líka fínu súpu. Það var sérlega gaman að sjá alla þessa FRAMarar á öllum aldri mæta. Í dag sáum við menn og konur sem ekki hafa mætt áður og jafnvel ekki sést lengi í húsinu eða á vellinum.
Fólk mætti sumt sérstaklega til að sýna FRAM stuðning eftir að hafa lesið fréttirnar í morgun sem okkur þótti vænt um.
Það er von okkar að við sjáum alla þá sem komu í dag og enn fleiri þegar við höldum næsta fund sem verður 24. febrúar.
Hvetjum alla FRAMara til að mæta og hjálpa okkur að láta fleiri vita af þessari velheppnuðu uppákomu.
Takk fyirr komuna og sjáumst í febrúar.
ÁFRAM FRAM