Strákarnir okkar í 2. fl. karla urðu í gærkvöldi Deildarmeistarar í handbolta þegar þeir lögðu Hauka að velli að strandgötu 23-32. Strákarnir hafa verið að spila vel í vetur og þó þeir eigi einn leik eftir var ljóst að með sigri í gær gæti ekkert lið náð þeim að stigum. Sannarlega vel gert og mikið álag á mörgum okkar strákum sem eru líka að spila töluvert með meistaraflokki. Þjálfarar hafa samt stýrt þessu töluvert í vetur og strákarnir sem eru að spila mest með meistaraflokki spila ekki alla leiki með 2. flokki.
Til hamingju strákar og það verður spennandi að fylgjast með úrslitakeppni 2. flokks þegar hún fer afstað eftir páska.
ÁFRAM FRAM