Nú ætlum við að halda áfram að hittast yfir súpudisk, fimmti súpufundur vetrarins verður næsta föstudag 23. febrúar.
Það var góð mæting í síðasta súpuhádegi en rúmlega 50 manns mættu, þurfum að sækka þann hóp aðeins núna en almenn ánægja og heilmikið spjallað.
Boðið verður upp á súpu og brauð eins og venjulega.
Ekki er ætlunin að hafa þetta formlegt heldur kjörin vettvangur fyrir okkur Framara til að hittast yfir súpuskál og ræða saman.
Verðinu verður stillt í algjört hóf eða eingöngu á kostnaðarverði kr. 500.-
Fimmti fundurinn í súpuröðinni verður föstudaginn 23. feb. kl. 12.00-13.30 í hátíðarsal FRAM Safamýri 26
Við hvetjum alla FRAMarar til að koma í súpu og endilega takið með ykkur félaga.
Kveðja Knattspyrnufélagið FRAM