fbpx
NM87984-FB-event-myndir-1_preview

FRAMherjakortin afhent í Safamýri fyrir fyrsta leik

Kæru Framarar.

Við viljum minna á fyrsta heimaleik ársins í fótboltanum laugardaginn 5. maí kl. 14:00 – leikið verður á gervigrasvelli okkar Framara í Safamýrinni og að þessu sinni bjóðum við Selfyssinga velkomna.

Á þessum tímamótum viljum við minna alla stuðningsmenn á FRAMherjaklúbbinn, fjöldi manns greiðir mánaðarlega fjárhæð sem rennur til rekstrar afreksstarfs félagsins. Þessi stuðningur skiptir sköpum í rekstrinum og gerir allt starfið stöðugra.

Með því að gerast aðilar í FRAMherjum styðja klúbbfélagar við félagið sitt með mánaðarlegum greiðslum og fá í staðinn árskort á alla heimaleiki knattspyrnuliðs Fram í Inkasso-deild karla ásamt því að FRAMherjum er boðið upp á kaffi í hálfleik og skemmtilegt spjall við vini og félaga.

Félagsaðild 2018

BRONSKORT kr. 2.000.- pr. mánuð
Heimaleikjakort fyrir 1 og kaffi í hálfleik.
Gildir á alla heimaleiki í Íslandsmóti. Hægt að kaupa í eingreiðslu kr. 22.000.-

SILFURKORT kr. 3.000.- pr. mánuð
Heimaleikjakort fyrir 2 og kaffi í hálfleik.
Gildir á alla heimaleiki í Íslandsmóti. Hægt að kaupa í eingreiðslu kr. 33.000.-

GULLKORT kr. 4.000.- pr. mánuð
Heimaleikjakort fyrir 3 og kaffi í hálfleik.
Gildir á alla heimaleiki í Íslandsmóti. Hægt að kaupa í eingreiðslu kr. 44.000.-

Hvert tímabil er frá maí til apríl ári síðar og endurnýjast aðildin í eitt ár í senn nema henni sé sagt upp fyrir lok hvers tímabils.

Hægt er að skrá sig með því að smella hér: https://fram.felog.is/
Einnig er hægt að senda tölvupóst á dadi@fram.is

Framherjakortin verða afhent fyrir fyrsta heimaleik FRAM gegn Selfossi á laugardag og alla virka daga í íþróttahúsi FRAM í Safamýri á skrifstofutíma.

Þeir sem óska eftir að fá Framherjakortin sín send í pósti geta sent tölvupóst á dadi@fram.is

Stuðningur ykkar er okkur mikilvægur.

Knattspyrnudeild FRAM

Share this post

Shopping cart0
There are no products in the cart!
Continue shopping
0

Skráðu þig á póstlistann!

Fáðu allar fréttir, tilboð og aðrar upplýsingar beint í æð!