Hinn ungi og efnilegi markvörður Fram, Rafal Stefán Daníelsson, hefur gengið til liðs við enska úrvalsdeildarfélagið AFC Bournemouth á lánssamningi fram á sumar. Á meðan á lánstímanum stendur hefur AFC Bournemouth tækifæri til að ganga frá kaupum á Rafal.
Rafal er fæddur og uppalinn á Neskaupstað. Þar hóf hann sinn knattspyrnuferil með Fjarðabyggð. Eftir stutta viðkomu á Egilsstöðum flutti hann með fjölskyldu sinni til Reykjavíkur 12 ára gamall og gekk til liðs við Fram. Rafal hefur verið valinn í úrtakshópa fyrir yngri landslið Íslands og auk þess farið til æfinga hjá erlendum félagsliðum m.a. Liverpool og Everton.
Rafal sem er nýorðinn 17 ára gamall hefur verið markvörður 2.flokks og varamarkvörður meistaraflokks Fram undanfarin misseri. Í byrjun janúar á þessu ári bauð AFC Bournemouth honum að koma til Englands til æfinga. Rafal dvaldi hjá félaginu í nokkra daga og stóð sig með stakri prýði og enska félagið lýsti strax yfir áhuga á að fá hann til liðs við sig. Eftir viðræður milli félaganna er niðurstaðan sú að Rafal gengur til liðs við AFC Bournemouth á láni fram á sumar.
Það verður spennandi að fylgjast með þessum efnilega leikmanni í framtíðinni. Knattspyrnudeild Fram óskar Rafal góðs gengis á Englandi.