fbpx
Flugeldar-2014-banner-Auglysing1

Flugeldasala FRAM

Flugeldasala FRAM hefur verið starfrækt í vel yfir 35 ár við góðan orðstír. Flugeldasalan er umfangsmesta fjáröflun handknattleiksdeildar FRAM og skiptir sköpum að hún gangi vel fyrir rekstur meistaraflokka FRAM.

Við viljum því minna á flugeldasölu FRAM nú um áramótin og hvetja alla FRAMara til að styðja félagið og kaupa flugeldana hjá FRAM.

Við höfum ávallt boðið upp á fjölbreytt vöruúrval og gott verð. Allar gerðir af rakettum, litlar og stórar tertur, blys, gos, knöll, fjölskyldupoka og margt, margt fleira.

Salan fer fram íþróttahúsi FRAM í Safamýri 26.

Handknattleiksdeild FRAM

Share this post

Share on facebook
Share on twitter
Share on linkedin
Share on pinterest
Share on email
Karfa0
There are no products in the cart!
Halda áfram að versla
0