
Leitað er 1-2 aðalþjálfara fyrir flokka, sem bætast við núverandi hóp yfir 20 aðalþjálfara.
Það sem við sækjumst eftir er fagmennska, áreiðanleiki, menntun í eða tengda faginu, góð samskiptahæfni, ástríða , vilji til að búa til skemmtilega og metnaðarfulla hópa og einhverra ára reynsla við þjálfun eða kennslu. Um er að ræða vinnu síðdegis, kvöldin og jafnvel stundum um helgar.
Fram er öflugt félag með mikla sögu, gott og öflugt teymi þjálfara, góða umgjörð og öflug lið í flestum flokkum og leggur áherslu á gott samstarf, samvinnu, góðan anda og þátttöku foreldra. Yfirþjálfari er Guðmundur Árni Sigfússon.
Fram er með gott utanumhald um leiki og mót, þjálfunarstefnu sem byggir á skýrum markmiðum, aðferðum og leiðum fyrir hvern flokk, öflugt unglingaráð og hefur fengið verðlaun HSI fyrir yngriflokkastarf. Fram vinnur í þéttu samstarfi við HSI, ÍSÍ, IBR og aðila í atvinnulífinu.
Umsækjendur sendi inn umsóknir sem tiltaka menntun og fyrri störf við fagið, til Bergur Pálsson, bergurp@hotmail.com, stjórnanda fagráðs Unglingaráðs Handknattleiksdeildar Fram. Umsóknir eru trúnaðarmál.
Umsóknarfrestur er til 3. apríl 2020.
fh
unglingaráðs
Bergur Pálsson