fbpx
6. fl.kv. Goðamótsmeistarar vefur

Skráning er hafin í sumarskóla FRAM í Grafarholti og Úlfarsárdal

SUMARNÁMSKEIÐ FRAM 2023 Grafarholt og Úlfarsárdalur

Knattspyrnuskóli FRAM og Íþróttaskóli FRAM verða í sumar starfræktir í nýrri Íþróttamiðstöð FRAM Úlfarsárdal.   Þar býður félagið upp á öruggt umhverfi og glæsilega aðstöðu í hjarta hverfisins. Námskeiðin fara fram í Íþróttamiðstöð  FRAM í Úlfarsárdal og nágrenni. Knattspyrnuskólinn verður starfræktur á æfingasvæði FRAM í Úlfarsárdal á sama svæði og íþróttaskólinn. Handboltanámskeiðið verður svo haldið í nýju Íþróttamiðstöð FRAM í Úlfarsárdal.

ÍÞRÓTTASKÓLI  FRAM

Íþróttaskóli FRAM er fyrir krakka á aldrinum 5-10 ára sem hafa gaman af íþróttum og útivist.  Farið verður í fjölbreytta og skemmtilega leiki, hinar ýmsu íþróttagreinar kynntar og einnig verður farið í stuttar ferðir.  Skólinn verður rekinn samhliða knattspyrnuskólanum þannig að einstaklingar geta valið hvort þeir eru eingöngu í knattspyrnu eða vilja hafa mikla fjölbreytni.
Hvert námskeið stendur í 2 vikur frá kl. 09:00-16:00 alla virka daga.  Jafnframt er boðið upp á hálfsdagsnámskeið frá kl. 09:00-12:00 og kl. 13:00-16:00. Hægt er að velja fyrir eða eftir hádegi,  einnig knattspyrnuskóla eftir hádegi og íþróttaskóla fyrir hádegi. Ekki verður boðið upp á heitan mat og þurfa börnin að koma með nesti. 
Boðið verður upp á gæslu í Íþróttamiðstöð FRAM í Úlfarsárdal frá kl. 07:45-09:00 og kl. 16:00-16:30.

Námskeið 1.  07 -16. júní     09:00-16:00 (8 dagar)     

Námskeið 2.  19 – 30. júní    09:00-16:00  

Námskeið 3.  03 – 14. júlí     09:00-16:00

Námskeið 4.  17 – 21. júlí     09:00-16:00 (viku námskeið).

HANDBOLTASKÓLI FRAM

Handboltaskóli FRAM er fyrir krakka á aldrinum 6-13 ára. Hópnum er skipt upp eftir aldri og þannig reynt að koma til móts við þarfir hvers hóps fyrir sig.  Námskeiðið stendur í 1 viku, frá kl. 09:00-12:00 (börn fædd 2010-2013) og 13:00-16:00 (börn fædd 2014-2017) virka daga.  Námskeiðið fer fram Íþróttamiðstöð FRAM Úlfarsárdal. Kennarar eru íþróttamenntaðir og handboltaþjálfarar hjá FRAM.

Námskeið 1.   14 –  18. ágúst         13:00-16:00   (börn fædd 2014-2017).

Námskeið 2.   14 –  18. ágúst         09:00-12:00   (börn fædd 2010-2013).

KNATTSPYRNUSKÓLI FRAM

Knattspyrnuskóli FRAM er fyrir stráka og stelpur á aldrinum 5-12 ára. Hópnum er skipt upp eftir aldri og þannig reynt að koma til móts við þarfir hvers hóps fyrir sig. Mikil áhersla er lögð á leikformið hjá yngstu þátttakendunum en meiri sérhæfing og tækni hjá þeim eldri.  Hvert námskeið stendur í 2 vikur, frá kl. 13:00-16:00 alla virka daga.
Boðið er upp á gæslu í Íþróttamiðstöð FRAM í Úlfarsárdal frá kl.12:15 og er það  innifalið í gjaldinu. 

Námskeið 1.  07 -16. júní     13:00-16:00 (8 dagar)     

Námskeið 2.  19 – 30. júní    13:00-16:00  

Námskeið 3.  03 – 14. júlí     13:00-16:00

Námskeið 4.  17 – 21. júlí     13:00-16:00 (viku námskeið).

Copa America í ágúst
Dagana 8. – 18. ágúst mun knattspyrnudeild Fram bjóða upp á Copa America knattspyrnuskóla fyrir krakka á aldrinum 5 til 12 ára.  Knattspyrnuskólinn verður kl. 13:00-16:00.

Þjálfarar námskeiðsins verða leikmenn meistaraflokka Fram, karla og kvenna, ásamt yngri flokka þjálfurum.

Hópnum verður skipt upp eftir aldri, reynslu og getu þannig að allir fái verkefni við hæfi.

Verð fyrir viku 1 (8.-11. ágúst) er kr. 10.000-.
Verð fyrir viku 2 (14.-18. ágúst) er kr. 12.000-.
Verð fyrir tvær vikur (8.-18. ágúst) er kr. 20.000-.

Skráning

Skráning hefst  5. maí og fer fram á heimasíðu FRAM www.fram.is.
Skráning og greiðsla fer fram í gegnum Sportabler skráningarkerfi FRAM.
Fram | Shop (sportabler.com)

Námskeiðsgjald í knattspyrnuskóla og íþróttaskóla ½ dagur er kr. 13.000.-

Íþróttaskóli 09:00-16:00  kr. 26.000.-

Námskeiðsgjald í handboltaskóla er kr. 8000.-  (5 dagar).

Veittur er 10% systkinaafsláttur og einnig er veittur 10% afsláttur ef keypt eru fleiri en eitt námskeið. Innifalið í verði er: Gæsla, veisla í lok hvers námskeiðs og skemmtilegt námskeið unnið af fagfólki. 


Allar nánari upplýsingar um námskeið á vegum FRAM er hægt að fá í síma 533-5600 skrifstofa FRAM í Úlfarsárdal milli kl 09:00 og 16:00 og í gegnum tölvupóst  toti@fram.is og dadi@fram.is

Í von um gott samstarf í sumar

Knattspyrnufélagið Fram 

Share this post

Share on facebook
Share on twitter
Share on linkedin
Share on pinterest
Share on email
Shopping cart0
There are no products in the cart!
Continue shopping
0

Skráðu þig á póstlistann!

Fáðu allar fréttir, tilboð og aðrar upplýsingar beint í æð!