Æfingatöflur fyrir veturinn 2024-2025 eru nú komnar á vefinn.
https://fram.is/aefingatoflur/
Athugið að æfingatöflur eru birtar með fyrirvara um nauðsynlegar breytingar, en vonum samt að þær verði óverulegar.
Rúturferðir á æfingar verða í vetur eins og venja er til, fyrir börn í 1-2 bekk.
Athugið að skrá þarf börn í 1-2 bekk í rútuaksturinn og greiða f. það sérstakt rútugjald kr. 10.000.-
Rútuplanið er að finna hér. https://fram.is/rutuferdir/
Æfingar í handbolta og taekwondo, hefjast frá mánudegi 2. sept. en æfingar í fótbolta frá miðvikudeginum 4. sept.
Í von um gott samstarf í vetur
Knattspyrnufélagið Fram