Egilshöllin opnar ekki fyrr en 1. október. Af þeim sökum munu æfingar 5. 6. og 7. flokks kvenna og 7.flokks karla á fimmtudögum og æfingar 3. og 4. flokks kvenna á föstudögum og 3.flokks karla á sunnudögum því fara fram á æfingasvæðum FRAM í Safamýri og Úlfarsárdal út september.
Við bendum foreldrum á að fylgjast vel með bloggsíðum og facebook-síðum flokkanna. Staðsetningar þessara æfinga verða auglýstar þar.