fbpx
Stelpunámskeið

Kynning á kvennaknattspyrnu FRAM á laugardag

Haldinn verður kynningardagur á kvennaknattspyrnu FRAM í íþróttahúsum Álftamýrarskóla og Sæmundarskóla á morgun, laugardaginn 7.september og eru allar stelpur fæddar á árunum 2002 – 2009 boðnar sérstaklega velkomnar en vissulega eru eldri stelpur velkomnar líka ☺

Kynningin verður í Álftamýrarskóla kl. 11:00-12:00 og í Sæmundarskóla kl. 13:00-14:00.

Á svæðinu verða stelpur úr meistaraflokki FRAM, alls konar stöðvar og þrautir fyrir stelpurnar að spreyta sig á . Heitt verður á könnunni og upplagt fyrir foreldra að hittast og spjalla saman eða spyrjast fyrir um starfið og komandi tímabil. Hægt verður einnig að skrá stelpur í félagið sem og að ganga frá greiðslu æfingagjalda.

FRAM símamótsmeistari 6fl kvk-fors

Á síðasta tímabili var mikið um að vera í kvennaknattspyrnunni, stelpurnar kynntust vel á æfingum, í æfingaleikjum, mótum og ekki síst á skemmtikvöldum. Á næsta tímabili vonast FRAM til að taka á móti fjöldamörgum stelpum, bæði nýjum sem og núverandi, og verður margt um að vera í fótboltanum.

myndir framsskóli 111

 Bloggsíður flokkanna má finna hér

Upplýsingar um æfingatíma er að finna á heimasíðu FRAM..

Áfram FRAM

Share this post

Shopping cart0
There are no products in the cart!
Continue shopping
0

Skráðu þig á póstlistann!

Fáðu allar fréttir, tilboð og aðrar upplýsingar beint í æð!