Kristinn Ingi Halldórsson leikmaður Fram hefur ákveðið að söðla um og gerast leikmaður með Val.
Í sumar hafnaði Fram tilboði Vals í leikmanninn. Valur lagði fram nýtt tilboð í Kristinn Inga í byrjun október og hafa náðst samningar á grundvelli þess um félagaskiptin.
Fram þakkar Kristni Inga fyrir mikilvægt framlag hans og ánægjulega samfylgd á undanförnum árum og óskar honum góðs gengis í framtíðinni.