fbpx
Stella vefur

Íþróttamaður FRAM 2013 verður útnefnd/ur í dag 30.des. kl. 18:00

StellaÍþróttamaður Fram 2013 verður útnefndur mánudaginn 30.desember.

Á 100  ára afmæli FRAM 2008 var ákveðið að taka upp þann sið að kjósa „Íþróttamann/konu ársins“ – aðila sem félagið telur að hafi náð afburða árangri í íþrótt sinni
ásamt því að vera fyrirmynd FRAM innan vallar sem utan.

Tilkynnt verður um valið á “Íþróttamanni FRAM 2013″  í hófi sem haldið verður mánudaginn 30. desember  kl. 18.00 í veislusal FRAM.

Þeir FRAMarar sem tilnefndir eru fyrir árið 2013 eru:

Ásta Birna Gunnarsdóttir            Handknattleikur
Elísabet Sara Emilsdóttir            Knattspyrna
Helgi Valentín Arnarson              Taekwondo
Hólmbert Aron Friðjónsson         Knattspyrna
Jóhann Gunnar Einarsson          Handknattleikur

Allir FRAMarar eru velkominir í hófið og væri gaman að sjá sem flesta í FRAMhúsi þennan dag.

Minnum svo á Flugeldasölu FRAM í íþróttahúsi FRAM og FRAM-Kotinu í Úlfarsárdal. 3 titlar í húsi þetta árið og félagið á skilið stuðning ykkar allra.

Knattspyrnufélagið FRAM

Share this post

Shopping cart0
There are no products in the cart!
Continue shopping
0

Skráðu þig á póstlistann!

Fáðu allar fréttir, tilboð og aðrar upplýsingar beint í æð!