fbpx
8.fl

Uppskeruhátíð unglingaráðs knattspyrnudeildar FRAM

Unglingaráð Knattspyrnudeildar FRAM heldur hina árlegu uppskeruhátíð sína miðvikudaginn 28. október kl. 17:30 í Ingunnarskóla.

Nokkrir leikmenn 3.-5. flokks verða heiðraðir fyrir góða frammistöðu og framfarir. Allir leikmenn 8.-6. flokks fá viðurkenningu og Eiríksbikarinn verður afhentur fyrir fyrirmyndarframmistöðu innan vallar sem utan.

IMG_1935

Að verðlaunaafhendingu lokinni er iðkendum, þjálfurum og foreldrum boðið upp á veitingar.

Allir knattspyrnumenn FRAM eru boðnir velkomnir á hátíðina, svo og fjölskyldur þeirra.

Foreldrar eru sérstaklega hvattir til að koma með börnum sínum.

Hlökkum til að sjá ykkur.
Barna- og unglingaráð Fram

Share this post

Shopping cart0
There are no products in the cart!
Continue shopping
0

Skráðu þig á póstlistann!

Fáðu allar fréttir, tilboð og aðrar upplýsingar beint í æð!