fbpx
3. fl.kv

FRAM leikur þrjá úrslitaleiki á Íslandsmótinu í handbolta á fimmtudag í Dalhúsum.

FRAM - Víkingur  4.flFRAM - Fylkir - Íslandsmót - 190913FRAM - Valur - Íslandsmót - 190913Við FRAMarar eigum 3 lið sem leika til úrslita á Íslandsmótinu í handbolta  en úrslitaleikir yngriflokka fara fram fimmtudaginn 5. maí.
Hefð er fyrir því að allir úrslitaleikir Íslandsmóts yngri flokkar fari fram á einum degi og að þessu sinni fara þessir leikir fram í Dalhúsum.
Úrslitadagur Íslandsmótsins hefur verið vel heppnaður, mikið lagt upp úr umgjörð leikjanna og það verður örugglega bullandi stemming í Dalhúsum í Grafarvogi á fimmtudag.
Leikir okkar liða á fimmtudag verða sem hér segir:

Kl. 09:30   4. fl. kv. Yngri   FRAM – Víkingur
Kl. 18:30   3. fl. kv.              FRAM – Fylkir
Kl. 20:30   2. fl. ka.              FRAM – Valur

Við hvetjum alla FRAMarar til að mæta í Dalhús á fimmtudag og hvetja krakkana okkar og styðja við bakið á þessum glæsilegu fulltrúum sem við eigum í úrslitaleikjum Íslandsmótsins 2016.

Allir leikirnir verða sýndir beint á http://www.fjolnir.is/tv

ÁFRAM FRAM

Share this post

Shopping cart0
There are no products in the cart!
Continue shopping
0

Skráðu þig á póstlistann!

Fáðu allar fréttir, tilboð og aðrar upplýsingar beint í æð!