Helgina 7.-9. október nk verður haldið B-stigs dómaranámskeið á stór-Reykjavíkursvæðinu, en það er miðstig dómararéttinda og gefur rétt til að dæma alla leiki nema leiki í meistaraflokki og 2. flokki karla, úrslitaleiki yngri flokka og bikarkeppni yngri flokka.
Skráning fer fram á robert@hsi.is og lýkur föstudaginn 30. september.
Þátttakendur skulu taka fram við skráningu nafn, kennitölu, félag, e-mail og síma.