Grunnskólamót höfuðborga Norðurlandanna 2018 fer fram í Kaupmannahöfn 27.maí til 1.júní. Mótið hefur verið haldið árlega frá árinu 1948 fyrir utan eitt ár og verður því haldið uppá 70 ára afmæli þess í ár. Keppt er í handknattleik stúlkna, knattspyrnu drengja og frjálsíþróttum beggja kynja.
Á dögunum var valið í úrvalslið Reykjavíkur sem keppir fyrir hönd borgarinnar á mótinu. Í liðinu eru 41 keppandi, fjórir þjálfarar og tveir fararstjórar. Keppendur í úrvalsliði Reykjavíkur eru 15 leikmenn í knattspyrnu drengja , 10 leikmenn í handknattleik stúlkna, 8 drengir og 8 stúlkur í frjálsíþróttum. Smellið hér til að skoða lista yfir lið Reykjavíkur og hér til að skoða dagskrá reykvíska hópsins.
Hópurinn flýgur til Kaupmannahafnar snemma á sunnudagsmorguninn 27.maí og kemur heim aftur seinni part dags föstudaginn 1.júní.
Á meðan mótinu stendur er hægt að fylgjast með og fá upplýsingar á heimasíðu Íþróttabandalags Reykjavíkur, www.ibr.is. Skoða þar úrslit leikja, skoða myndir og lesa stutta umfjöllun alla daga. Einnig er hægt að fylgjast með á Facebooksíðu Íþróttabandalags Reykjavíkur.
Við FRAMarar eru stoltir af því að eiga 2 keppendur í úrvalsliði Reykjavíkur þetta árið. Tinna Björk Bergsdóttir mun keppa í handbolta en Sigfús Árni Guðmundsson í knattspyrnu. Mótið hefst mánudaginn 28 maí og óskum við þeim og þeirra liðsfélögum í Reykjavík alls hins besta.
Það gríðarlega skemmtileg upplifun að taka þátt í þessu móti og verður spennandi fyrir okkar krakka að taka þátt í þessu móti í Danmörku. Þau sem voru valinn frá FRAM að þessu sinni eru:
Tinna Björk Bergsdóttir Fram Handknattleikur
Sigfús Árni Guðmundsson Fram Knattspyrna
Gangi ykkur vel
ÁFRAM FRAM